Innlent

Sjúklingar fastir á geðdeild því þeir fá ekki húsnæði

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
14 sjúklingar eru á réttar- og öryggisgeðdeild Landspítalans. Helmingur hefur lokið meðferð en hefur engan samastað.
14 sjúklingar eru á réttar- og öryggisgeðdeild Landspítalans. Helmingur hefur lokið meðferð en hefur engan samastað. Fréttablaðið/anton
Af fjórtán sjúklingum á réttar- og öryggisgeðdeildum Landspítala hefur helmingur náð nægilega góðri heilsu til að útskrifast af spítalanum en ónæg búsetuúrræði koma í veg fyrir það.

„Þessir sjúklingar þurfa að vera hjá okkur því annars fara þeir á götuna. Við getum ekki leyft það af siðferðislegum ástæðum. Varðandi sjúklinga á réttargeðdeild höfum við ekki heldur leyfi til þess því við vinnum eftir dómi,“ segir Guðmundur Sævar Sævarsson, deildarstjóri öryggis- og réttargeðdeildarþjónustu spítalans.

Sumir hafa beðið í að minnsta kosti ár eftir viðeigandi búsetuúrræði en húsnæðið þarf að bjóða upp á aðhald, ramma og eftirlit.

„Það er ekki í boði að þessir einstaklingar fari inn á aðstandendur. Þetta er fólk með langa sögu veikinda og getur valdið skaða eða gert eitthvað af sér ef það veikist aftur. Það þarf að vera undir eftirliti og það er á ábyrgð samfélagsins að sjá til þess,“ segir Sævar.

Guðmundur Sævar Sævarsson, deildarstjóri öryggis- og réttargeðdeildarþjónustu Landspítalans
Á öryggisgeðdeild eru sjúklingar sem sviptir hafa verið sjálfræði lagðir inn og eru rúm fyrir átta sjúklinga. Í dag eru þó níu manns á deildinni.

„Við sinnum ekki lengur meðferð á þessum sjúklingum og þannig eru deildirnar notaðar sem geymslur. Um leið getum við ekki tekið á móti sjúklingum sem við ættum að vera að sinna. Þeir eru fastir á Hringbraut,“ segir Guðmundur.

Alls bíða 30 til 40 geðfatlaðir eftir búsetuúrræði í Reykjavík og þar af tveir af þessum tveimur deildum.

Stefán Eiríksson, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, segir átak hafa verið gert með samstarfi velferðarsviðs og geðsviðs spítalans. Um áramót voru sextán sjúklingar sem höfðu lokið meðferð settir á lista og hafa fimmtán af þeim fengið búsetuúrræði. Þar af fjórir af öryggis- og réttargeðdeild.

„Síðan hafa tveir sjúklingar af þessum deildum bæst við á listann á síðustu mánuðum. Þeir bíða nú eftir úrræði hjá okkur eða öðru úrræði sem ríkið þyrfti að sjá um þar sem venjuleg úrræði á vegum sveitarfélaga duga ekki í sumum tilfellum,“ segir Stefán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×