Bíó og sjónvarp

Sjö atriði sem þú mögulega vissir ekki um kvikmyndina Seven

Stefán Árni Pálsson skrifar
Morgan Freeman og Brad Pitt fóru á kostum í myndinni.
Morgan Freeman og Brad Pitt fóru á kostum í myndinni.
Kvikmyndin Seven kom út árið 1995 og sló hún rækilega í gegn á sínum tíma. Með aðalhlutverk í myndinni fara þeir Morgan Freeman, Brad Pitt og Kevin Spacey.

YouTube síðan CineFix gefur reglulega út skemmtileg myndbönd sem sýna eldri kvikmyndir í skemmtilegu ljósi.

Nýjasta myndbandið tekur á kvikmyndinni Seven er þar er farið í gegnum sjö atriði sem þú vissir ekki um myndina. Þar kemur í ljós að Brad Pitt meiddist illa við tökur á einu atriði og var því handritinu breytt í leiðinni.

Einnig varð Pitt að vera í gifsi í nokkur atriðum og þurfti að fela það með allskyns brögðum. Hér að neðan má sjá þessi sjö atriði sem þú vissir ekki um kvikmyndina Seven.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×