Sport

Sjáið Fjallið boxa við Skúla Ármanns

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá kappana boxa.
Hér má sjá kappana boxa.
Myndband af hnefaleikabardaga Hafþórs Júlíusar Björnssonar og Skúla Ármanssonar gengur nú um netheima. Myndbandið má sjá hér að neðan.

Óþarfi er að kynna Hafþór Júlíus fyrir landsmönnum. Hann er þekktur undir nafninu Fjallið og hefur náð mögnuðum árangri í kraftasporti. Skúli Ármannsson er einn reyndasti hnefaleikakappi landsins. Hann byrjaði að stunda box þegar hann var á sextánda aldursári hjá Guðmundi Arasyni í Skútuvogi. Skúli hélt til Bandaríkjanna tvítugur og boxaði við nokkra atvinnumenn þar í landi.

Bardaginn er ansi snarpur á milli þeirra félaga, er um þrjár mínútur og sýna þeir flotta takta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×