Fótbolti

Sjáðu markaveisluna hjá KR í Belfast

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
KR-ingar fagna í fyrri leiknum gegn Glenavon.
KR-ingar fagna í fyrri leiknum gegn Glenavon. vísir/getty
KR-ingar fóru á kostum í Belfast í gær er þeir völtuðu yfir Glenavon í Evrópudeildinni.

KR pakkaði Glenavon saman og vann ótrúlegan stórsigur, 6-0. KR vann því rimmu liðanna 8-1 samanlagt.

Willum Þór Þórsson fer því heldur betur vel af stað með KR-liðið en hann tók við liðinu af Bjarna Guðjónssyni fyrir Evrópuleikina.

KR hefur verið í miklum vandræðum með að skora í allt sumar en það var ekkert vesen að skora í Belfast í gær.

Sjá má mörkin á heimasíðu BBC hér.


Tengdar fréttir

Burst í Belfast og KR örugglega áfram

KR rúllaði yfir n-írska liðið Glenavon í Belfast í seinni leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í kvöld. Lokatölur 0-6 og KR vann einvígið 8-1, samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×