Enski boltinn

Sjáðu Man. City valta yfir AC Milan - Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Englandsmeistarar Manchester City niðurlægðu AC Milan, 5-1, í B-riðli International Champions Cup-æfingamótsins í gærkvöldi, en Milan er nú búið að tapa báðum leikjum sínum illa á mótinu.

City komst í 4-0 á fyrstu 26 mínútum leiksins með mörkum frá StevanJocvetic, Scott Sinclair, Jesús Navas og Kelechi Iheanacho.

Sullay Muntari minnkaði muninn fyrir Milan á 42. mínútu en Stevan Jovetic innsiglaði stórsigur City með öðru marki sínu á 58. mínútu.

Stöð 2 Sport 2 sýnir frá mótinu, en í spilaranum hér að ofan má sjá öll mörkin úr leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×