Sport

Sjáðu frábærar myndir af Conor æfa með Gunnari Nelson og njóta lífsins á Íslandi

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Conor McGregor gerði allt vitlaust í UFC-heiminum á meðan hann var hér á landi.
Conor McGregor gerði allt vitlaust í UFC-heiminum á meðan hann var hér á landi. vísir/kjartan páll sæmundsson
Írski bardagakappinn Conor McGregor hélt af landi brott í byrjun vikunnar eftir afdrifaríka daga hér á landi þar sem hann hætti að keppa í MMA en hætti svo við að hætta.

Conor kom til landsins ásamt þjálfara sínum og Gunnars Nelson, John Kavanagh, til að hjálpa Gunnari við lokaundirbúning fyrir bardaga sinn í Rotterdam 8. maí en það verður í fyrsta sinn sem Gunnar stígur í búrið eftir tap gegn Demian Maia í desember í fyrra.

Þrátt fyrir allt sem gekk á „utan vallar“ æfðu Conor og Gunnar stíft ásamt félögum sínum í Mjölniskastalanum en Gunnar er nú farinn til Dyflinnar ásamt Kavanagh og Conor til að klára undirbúning fyrir bardagann.

Conor nýtti líka tækifærið til að njóta lífsins með vinum sínum úr Mjölni eins og sjá má á frábærum myndum Kjartans Páls Sæmundssonar, hirðljósmyndara Mjölnismanna.

Conor skellti sér ásamt Mjölnisfólkinu í Gömlu laugina, á hestbak og þá keyrðu þeir á torfærubílum um fjöll og firnindi.

Myndir Kjartans Páls má sjá á Facebook-síðu Mjölnis hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir

Jones og Cormier koma í stað Conor og Diaz

UFC tilkynnti í dag nýjan aðalbardaga fyrir UFC 200 í júlí. Þar með er líklega endanlega ljóst að Conor McGregor og Nate Diaz berjast ekki það kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×