Sport

Sjáðu bardaga Gunnars í heild sinni í lýsingu Bubba og Dóra DNA

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Gunnar Nelson mátti þola sitt fyrsta tap í blönduðum bardagalistum í gærkvöldi þegar hann tapaði fyrir Bandaríkjamanninum Rick Story á UFC-bardagakvöldi í Stokkhólmi.

Story vann á stigum, en tveir dómarar dæmdu honum sigur á meðan einn dómarinn vildi meina að Gunnar hefði unnið bardagann.

Gunnar hafði fyrir gærkvöldið unnið þrettán bardaga og gert eitt jafntefli, en er nú kominn með eitt tap á ferilskrána.

Hér að ofan má sjá bardagann í heild sinni í lýsingu Bubba Morthens og DóraDNA, en hann fór alla leið í fimm lotur.

MMA

Tengdar fréttir

Gunnar tapaði á stigum

Gunnar Nelson tapaði sínum fyrsta bardaga í blönduðum bardagalistum á stigum gegn Rick Story.

Gunnar á leið í sneiðmyndatöku

Haraldur Nelson faðir Gunnars Nelson var í viðtali á Bylgjunni strax eftir tap Gunnars gegn Rick Story í UFC í Stokkhólmi í kvöld.

Story: Vildi ekki hlaupa inn í eldinn með Gunnari

Það var mjög sérstakt að sjá Rick Story á blaðamannafundinum eftir bardagann við Gunnar Nelson. Þar fór ekki maður sem leit út fyrir að hafa lagt andstæðing sinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×