Bíó og sjónvarp

Sjáðu atriði úr Ant-Man

Birgir Olgeirsson skrifar
Ant-Man er kominn í bíó.
Ant-Man er kominn í bíó. Vísir/IMdB.com
Nýjasta ofurhetjumyndin frá Marvel, Ant Man, er komin í kvikmyndahús hér á landi. Myndin segir frá svikahrappinu Scott Lang sem býr yfir sérstökum búningi sem minnkar hann í skordýrastærð en veitir honum um leið ofurkrafta. Búninginn fékk hann frá læriföður sínum Hank Pym sem þarf á hjálp Scott Lang að halda til að bjarga heiminum frá illmennum.

Svona hljómar söguþráður myndarinnar í mjög stuttu máli en með helstu hlutverk fara Paul Rudd, Michael Douglas, Evangeline Lilly og Corey Stoll.

Kvikmyndavefurinn IMdB.com hefur nú birt atriði úr myndinni sem má sjá hér fyrir neðan.

Ant-Man star Paul Rudd is our Guest Editor! Watch this exclusive clip from the movie, which opens tomorrow.Watch more Ant-Man videos here: http://imdb.to/1CCSQZ4

Posted by IMDb on Thursday, July 16, 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×