Innlent

Situr á 65 milljónum króna á Norðurlandi en veit ekki af því

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mikil snjókoma hefur verið á Akureyri undanfarið en myndin er tekin í miðbænum í morgun.
Mikil snjókoma hefur verið á Akureyri undanfarið en myndin er tekin í miðbænum í morgun. Ricky Gabriel
Enginn hefur vitjað 64,6 milljóna króna lottóvinnings frá því á gamlársdag. Miðinn var keyptur í Hagkaupum á Furuvöllum á Akureyri þann 28. desember en potturinn var fimmfaldur þennan síðasta laugardag ársins.

Miðinn er tíu raða sjálfvalsmiði sem kostaði 1300 krónur. Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, segist hafa áhyggjur enda sé vinningurinn sérstaklega stór.

„Það er kominn hálfur mánuður,“ segir Stefán en minnir þó á að miðaeigandinn hafi til 28. desember 2017 til þess að vitja vinningsins. Hins vegar sé ekkert vit í því að vera að slugsa enda aukist hættann á að miðinn týnist eftir því sem lengur er beðið.

Sóttu ekki 22 milljóna vinning í fyrra

Stefán segir að um 2 prósent vinninga sé ekki vitjað hjá Íslenskri Getspá árlega. Það svari til um 25-30 milljóna í meðalári en stór vinningur, 22 milljónir króna sem enginn vitjaði í fyrra, hækkar þá upphæð. Almennt séu þetta vinningar af stærðargráðunni 400-800 þúsund sem safnist saman, 1-2 milljónir króna á mánuði.

Fimm aðilar gerðu tilkall til 22 milljóna króna vinningsins í fyrra en enginn hafði miða því til staðfestingar, sem nauðsynlegt er.

„Við viljum að fólkfái vinningana sína og minnum sérstaklega fólk, sem kaupir lottómiða með peningum, á að passa upp á miðana sína,“ segir Stefán. Fresturinn rann út í október í fyrra en miðinn var keyptur ári fyrr.

Milljónirnar 22 renna til eigenda Íslenskrar getspár; ÍSÍ (47%), Öryrkjabandalags Íslands (40%) og Ungmennafélags Íslands (13%). Þeir sem ekki vitja risastórra vinninga verða því um leið stórir styrktaraðilar íþrótta og öryrkja á Íslandi.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×