Innlent

Sigurður Ingi: Framsóknarflokkurinn tilbúinn til að axla ábyrgð

Sveinn Arnarsson skrifar
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins. Vísir/Ernir
Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, segir flokkinn nú sem fyrr tilbúinn til að stíga inn í stjórnarmyndunarviðræður. Hann mun eiga samtal við formenn annarra flokka en vill ekki gefa upp hverjir það muni vera. Eftir að stjórnarmyndunarviðræður flokkanna fimm runnu út í sandinn er ný staða komin upp í íslenskri pólitík.

Tvær eiginlegar tilraunir hafa verið gerðar til stjórnarmyndunar. Annars vegar milli Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar undir forystu Bjarna Benediktssonar og hinsvegar milli VG, Samfylkingar, Pírata, Bjartrar framtíðar og Viðreisnar undir stjórn Katrínar Jakobsdóttur. Báðar þessar tilraunir hafa strandað á málefnum flokkanna.

Eini flokkurinn sem náði kjöri á þing og hefur ekki tekið þátt í viðræðum um myndun ríkisstjórnar er Framsóknarflokkurinn. Sigurður Ingi segir flokkinn stjórntækan og ábyrgt stjórnmálaafl sem axli þá ábyrgð sem stjórnmálaflokkur þarf að axla á óvissutímum í stjórn landsins.

Sjá einnig: Forsetinn gæti farið að reka á eftir formönnum flokkanna

Sigurður Ingi og Lilja Alfreðsdóttir ræddu við Katrínu skömmu eftir að hún fékk stjórnarmyndunarumboðið.Vísir/Ernir
„Ég mun eiga samtal við formenn annarra flokka. Ég mun ekki gefa það upp nú hverjir það eru á þessu stigi málsins. Katrín Jakobsdóttir er enn með umboð til stjórnarmyndunar og framhaldið ræðst svolítið af því hvað hún gerir. Þetta gæti allt eins endað aftur hjá forsetanum,“ segir formaður Framsóknarflokksins.

Þegar Sigurður Ingi er spurður að því hver eigi að taka við keflinu næst til þess að reyna að mynda stjórn sagðist hann ekki geta sagt það á þessum tímapunkti. Hinsvegar væri ljóst að margt gæti gerst á næsta sólarhring.

„Katrín Jakobsdóttir er með stjórnarmyndunarumboðið og ég las það sem svo að hún hyggðist ekki skila því fyrr en í fyrsta lagi eftir fund með forseta. Það getur ýmislegt gerst á þeim tíma,“ segir Sigurður Ingi.

Að mati Sigurðar Inga er mikilvægt að sú ríkisstjórn sem verður mynduð samanstandi af bæði vinstri og hægri flokki með tengingu yfir miðjuna. Hvort hann sé að óska eftir viðræðum við Sjálfstæðisflokk og VG er óvíst en staðan er snúin eins og hún lítur út núna.

„Niðurstaða kosninganna í október kallaði á ríkisstjórn með breiðari skírskotun. Ég hefði talið að það þurfi slíka stjórn, frá hægri til vinstri og yfir miðjuna. Ekki síst í því ástandi sem nú er uppi á vinnumarkaði,“ segir Sigurður og bendir á að grunnskólakennarar standi nú í harðri kjaradeilu.

Sjá einnig: „Farið að glitta í stjórnarkreppu“

Framsóknarflokkurinn tapaði miklu fylgi í kosningunum í lok október frá síðustu kosningum árið 2013 þegar hún vann stórsigur. Formannsskipti urðu í flokknum stuttu fyrir kosningar sem var flokknum erfitt enda hafði síðasta sumar mikið farið í innanflokksátök. Sigurður segir hinsvegar flokkinn þurfa að axla ábyrgð og vera traustur á þessum óvissutímum.

„Við erum ábyrgt stjórnmálaafl og auðvitað munum við gera það sem við getum svo að hér geti myndast starhæf ríkisstjórn. Það er skylda á herðum okkar stjórnmálamanna að búa hér til starfhæfan meirihluta og því lengri tíma sem það tekur og mistekst oftar eykst ábyrgð okkar og byrðarnar þyngjast."


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×