Lífið

Sigur Rós biður um traust og boðar tónleika í anda ævintýra

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Strákarnir í Sigur Rós voru við upptökur í hljóðveri í New York í lok sumar.
Strákarnir í Sigur Rós voru við upptökur í hljóðveri í New York í lok sumar. Vísir/Getty

Sigur Rós er á leið í tónleikaferðalag næsta sumar en sveitin mun spila á tíu tónleikum hið minnsta á tónlistarhátíðum í Evrópu í júní, júlí og ágúst. 

Í tilkynningu frá sveitinni kemur fram að í hvert sinn sem lagt sé upp í tónleikaferðalag þá vilji maður að ferðin verði öðruvísi og þannig séð það yfirleitt. Það sé vegna þess að sveitin sé yfirleitt að kynna nýja plötu og það sé vissulega skemmtilegt og krefjandi að reyna að flytja á sviði það sem lögð hefur verið svo mikil vinna í í hljóðveri.

Sjá einnig:Sigur Rós tekur upp í New York

Á sínum tíma hafi Sigur Rós hins vegar gert hlutina á annan hátt. Sveitin hafi farið á ferðalag og reynt að fanga sem mest af stemningunni, unnið í efninu á ferðalaginu en svo sé krefjandi að reyna að ná því öllu saman í útgáfuna sem tekin sé upp í hljóðverinu eftir á.

Á komandi tónleikaferðalagi ætlar Sigur Rós bæði að spila gamalt efni en einnig að leita aftur í þankagang sinn í kjölfar útgáfu á plötunni Ágætis byrjun.

„Í tvö ár unnum við fram og til baka í lögunum, á sviðinu frammi fyrir fólki kvöld eftir kvöld, sem urðu svo að að plötunni (),“ segir í tilkynningunni. Sveitin ætlar að fara sömu leið nú og spila á tónleikahátíðum næsta sumar í anda ævintýris.

„Það eina sem við getum sagt núna er að þetta verður öðruvísi, með nýjum lögum sem við höfum ekki spilað, sýningin verður öðruvísi og kannski frekari nýbreytni. En þar fyrir utan biðjum við ykkur bara að treysta okkur.“

Sigur Rós gaf síðast út plötuna Kveikur sumarið 2013 og fór samhliða í 82 daga tónleikaferðalag um heiminn. Kom sveitin meðal annars fram í spjallþætti Jimmy Fallon.


Tengdar fréttir

Sigur Rós dró hann til Íslands

Frakkinn Mallory Carême ákvað að flytja til Íslands eftir að hafa heillast af landinu fyrir tilstuðlan Sigur Rósar. Hann hreinlega elskar að fara á tónleika.

Draumur Pippu um Íslandsför rætist

Pippa, sjö ára gömul flogaveik stúlka frá Bandaríkjunum, sem á sér þann draum heitastan að heimsækja Íslands, kemur til landsins á morgun ásamt fjölskyldu sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×