Innlent

Sigmundur fær 22 milljóna ráðherrabíl

Bjarki Ármannsson skrifar
Forsætisráðuneytið hefur gengið frá kaupum á nýjum ráðherrabíl fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.
Forsætisráðuneytið hefur gengið frá kaupum á nýjum ráðherrabíl fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Vísir/Valli
Forsætisráðuneytið hefur gengið frá kaupum á nýjum ráðherrabíl fyrir Sigmund Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra. Ráðherrann fær Mercedes Benz S-Class en listaverð bílsins er um 22 milljónir.

Viðskiptablaðið greinir frá þessu. Í frétt blaðsins kemur fram að kaupin hafi verið boðin út í samstarfi við Ríkiskaup. Í frétt Eyjunnar um kaupin segir að bíllinn hafi kostað þrettán milljónir með ráðherrabílaafslætti. 

Utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og sjávarútvegsráðherra hafa allir fengið nýjar bifreiðar það sem af er kjörtímabili.


Tengdar fréttir

Nýir lúxusbílar fyrir ráðherrana

Gunnar Bragi Sveinsson keyrir um á glænýjum Land Rover Discovery. Bjarni Benediktsson fær Mercedes-Benz-bifreið sína um áramótin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×