Innlent

Sextánfalda framleiðslugetuna

Svavar Hávarðsson skrifar
Kísillinn sem geoSilica framleiðir er nauðsynlegur fyrir bein.
Kísillinn sem geoSilica framleiðir er nauðsynlegur fyrir bein.
Nýsköpunarfyrirtækið geoSilica á Ásbrú í Reykjanesbæ er að leggja lokahönd á framkvæmdir til að sextánfalda framleiðslugetu fyrirtækisins. GeoSilica framleiðir kísilsteinefni úr jarðhitavatni frá Hellisheiðarvirkjun, náttúrulegt steinefni í vökvaformi sem er selt á markaði fyrir heilsuvörur. Metsala hjá fyrirtækinu undanfarna mánuði kallaði á framkvæmdir.

Ágústa Valgeirsdóttir, verkefna- og viðskiptaþróunarstjóri geoSil­ica, segir að þegar sé byrjað að selja kísilsteinefni geoSilica hjá Amazon í Bandaríkjunum, og er fyrirtækið í viðræðum við nokkra aðra aðila um dreifingu á vörum fyrirtækisins erlendis – til dæmis í Finnlandi og Þýskalandi.



Ágústa Valgeirsdóttir


„Hlutirnir eru að gerast hratt hjá okkur. Við viljum tryggja að þegar okkur berst stór pöntun þá getum við brugðist við henni, sérstaklega frá erlendum mörkuðum. Við erum í raun að búa í haginn fyrir framtíðina,“ segir Ágústa.

Kísilsteinefnið, fyrsta vara geoSilica, kom fyrst á markað í lok árs 2014. Haustið 2012 hafði fyrirtækið fengið verkefnastyrk Tækniþróunarsjóðs, til að hefja vinnu við rannsóknir og þróun á vörunni. Sama ár hófst starfsemi við Hellisheiðarvirkjun til að nýta skiljuvatn virkjunarinnar. Sú starfsemi hefur farið fram í samstarfi við Orku náttúrunnar, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, en einnig fékkst styrkur frá Uppbyggingarsjóði Suðurnesja og fleirum.

Fyrirtækið hefur nú komið upp fjórum átta þúsund lítra tönkum sem tryggir fyrirtækinu næga framleiðslugetu bæði fyrir íslenskan og erlendan markað. Laga þurfti tankana að framleiðsluaðferðum geoSilica.

„Framleiðslan okkar er öll á Hellisheiði. Þar erum við með ný tæki sem við fjárfestum í líka og allt verður klárt á mánudaginn. Við erum við hliðina á skiljustöðinni á Hellisheiði og fáum vökvann beint frá virkjuninni – þegar við fáum hráefni okkar þá er það 120 gráðu heit gufa, sem fer í gegnum varmaskipti og er kæld. Í þessum tönkum bíður vatnið áður en við hefjum framleiðslu,“ segir Ágústa og bætir við að framleiðslugetan fyrir stækkun hafi verið um þúsund lítrar á tíu til fimmtán dögum.

„Það er svo fyrirtækið Pharma­Arctica á Grenivík sem tappar á fyrir okkur. Þetta er eina fyrirtækið á Íslandi sem er með lyfjavottaða ferla hjá sér og sér um frágang á mjög miklu af fæðubótarefnum, húðvörum og slíku hér á landi. Gæðaferlarnir hjá okkur krefjast þess að þau á Grenivík sjái um þennan hluta framleiðslunnar,“ segir Ágústa.

Markaðurinn fyrir heilsuvörur er gríðarstór. Kísillinn (silica) sem geoSilica framleiðir í vökvaformi mætir því harðri samkeppni sem ríkir á markaði fyrir fæðubótarvörur. Hins vegar sér fyrirtækið tækifæri í því að bjóða 100% náttúrulegt steinefni, en slíkar vörur eru ekki algengar í dag – hvað þá á drykkjarformi sem líkaminn á auðvelt með að vinna úr.

„Það eru margir að spá í uppruna vörunnar og hvernig hún nýtist við inntöku í líkamanum. Þar teljum við okkur vera sterk í samkeppni,“ segir Ágústa.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×