Bíó og sjónvarp

Setur tóninn fyrir fyrsta trailer Batman V Superman

Samúel Karl Ólason skrifar
Zack Snyder leikstjóri kvikmyndarinnar Batman V Superman: Dawn of Justice, birti í morgun svokallaðan teaser fyrir stiklu. Hún verður sýnd í völdum Imax kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum á mánudaginn.

Lítið sem ekkert hefur sést frá myndinni, sem mikil eftirvænting er eftir. Á ComiCon ráðstefnunni í júlí í fyrra var birt örstutt myndband þar sem Ben Affleck í hlutverki Batman og Henry Cavill í hlutverki Superman virtust vera í einhvers konar störukeppni.

Sú stikla hefur hvergi birst á netinu nema á því leyti að símamyndband af skjánum var birt á rússneskri myndbandaveitu. Warner Bros lét hins vegar loka á það myndband mjög fljótlega.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×