Innlent

Séra Örn Bárður vill standa vörð um menningararfinn

Jakob Bjarnar skrifar
Myndin er að sönnu sláandi og vill séra Örn Bárður brýna fyrir vinum sínum, með birtingu myndarinnar, að standa vörð um menningararfinn.
Myndin er að sönnu sláandi og vill séra Örn Bárður brýna fyrir vinum sínum, með birtingu myndarinnar, að standa vörð um menningararfinn.
Séra Örn Bárður Jónsson birtir á Facebookvegg sínum nokkuð sláandi mynd (meðfylgjandi) þar sem sjá má framtíðarsýn; búrkuklæddri Evrópu. Sögnin hlýtur að vera sú að múslimar séu að leggja undir sig gömlu álfuna. Myndbirtingin nú kemur beint inn í nokkuð hatrama umræðu um flóttamenn og fjölmenningarsamfélagin.

Klerkur lætur svohljóðandi spurningu fylgja myndinni:

„Hvað bíður Evrópu? Þetta?“

Vísir hefur reynt að ná viðtali við séra Örn Bárð nú í að verða tvo tíma, eða allt frá því að hann birti myndina, en án árangurs. Örn Bárður hefur þó gefið út að myndin sé ekki sett fram vegna þess að hann óttist flóttafólk.

Kallað hefur verið eftir viðbrögðum kirkjunnar, en hún hefur ekki tjáð sig svo orð sé á gerandi um þessi álitaefni svo orð sé á gerandi, þá hvað varðar innflytjendamál öll. Enda má heita að kirkjan sé í nokkrum vanda: Gera má ráð fyrir því að hún vilji standa vörð um kristna trú og mörgum þar innan dyra hugnast væntanlega lítt aukin islamstrú á Íslandi, í því samhengi.

Séra Örn Bárður hefur sagt á vegg sínum, í athugasemd við myndina: „Tek fram að þetta er ekki sett á vegginn minn af ótta við flóttamenn sem við verðum að hjálpa heldur minna Evrópubúa á að standa vörð um eigin menningararf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×