Innlent

Seinkanir hjá WOW air: Vélin frá Berlín á að lenda hálftíma eftir að jólin hringja inn

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Seinkanirnar í dag, aðfangadag, nema nokkrum klukkutímum.
Seinkanirnar í dag, aðfangadag, nema nokkrum klukkutímum. Vísir/Vilhelm
Seinkanir eru á Evrópuflugum WOW air til Keflavíkur eftir hádegi í dag og er til að mynda áætluð koma vélar flugfélagsins frá Berlín samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar klukkan 18:30 í kvöld, hálftíma eftir að jólin hringja inn.

Upphafleg áætlun var að vélin myndi lenda klukkan 14:20 og þá lenda aðrar vélar WOW air á landinu rétt fyrir jól, það er milli klukkan 16:30 og 17:50, í stað þess að lenda á milli klukkan 13:50 og 14:15.  

Halldór Berg Harðarson er einn af þeim sem ná ekki heim áður en kirkjuklukkurnar hringja jólin inn. Hann er harðorður í garð WOW air í færslu á Facebook-síðu sinni sem hann birti nú í hádeginu, og sjá má hér að neðan, auk þess sem Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórnmálafræði furðar sig á seinkuninni frá Berlín en dóttir hans mun ekki ná í tæka tíð í jólamatinn.

Svanhvít Friðriksdóttir, upplýsingafulltrúi WOW air, segir í samtali við Vísi að ástæða seinkananna sé bilun sem varð í einni breiðþotu flugfélagsins í Amsterdam í gær.

Það hafði mikil keðjuverkandi áhrif á áætlanir WOW air og sá fyrirtækið fram á, ef að það myndi ekki seinka vélunum frá Evrópu í dag, að vera með hundruð farþega strandaglópa hér á landi yfir jólin sem hefðu ekki komist til Bandaríkjanna. Af tvennu illu hafi því verið ákveðið að fresta Evrópuflugunum.

Svanhvít leggur áherslu að það séu mjög fáir Íslendinga að fljúga með WOW air heim í dag; flestir farþeganna séu erlendir ferðamenn á leið í áframhaldandi tengiflug til Norður-Ameríku.

„En það munu allir komast heim á eftir en Íslendingar eru greinilega ekki að fljúga mikið þennan dag,“ segir Svanhvít.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×