Innlent

Segja sveitarfélög virða reglur að vettugi

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Dekkjakurl er víða að finna á fótboltavöllum og öðrum leikvöllum barna. Þingmenn úr öllum flokkum með Willum Þór Þórsson í fararbroddi leggja til að kurlinu verði skipt út fyrir hættuminni efni.
Dekkjakurl er víða að finna á fótboltavöllum og öðrum leikvöllum barna. Þingmenn úr öllum flokkum með Willum Þór Þórsson í fararbroddi leggja til að kurlinu verði skipt út fyrir hættuminni efni. Fréttablaðið/Stefán
„Eftirlitsumhverfið hefur brugðist,“ segir í samantekt foreldrahópsins Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar, með nýrri athugasemd við þingsályktunartillögu 17 þingmanna úr öllum flokkum um bann við notkun gúmmíkurls úr dekkjum á leik- og íþróttavöllum.

„Endurnýting úrgangs með því að dreifa sótugum úrgangsdekkjum, með tilheyrandi óþrifnaði og óþægindum fyrir börnin, hefur fengið að viðgangast óáreitt,“ segir þar jafnframt. Umsögn hópsins er ítarleg, en henni fylgir 30 síðna greinargerð þar sem málið er reifað.

Hópurinn, sem er með yfir 1.600 meðlimi á Face­book, leggur til að þingsályktunartillagan verði samþykkt.

Þessa mynd lætur foreldrahópurinn Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar fylgja með umsögn sinni um þingsályktunartillögu um að banna notkun dekkjakurls. Myndin er samsett úr notendamyndum fólks sem hefur skráð sig á Facebook síðu hópsins.Mynd/Foreldrahópurinn NVÁT..
Freyr Hermannsson er talsmaður foreldrahópsins Nýjan völl án tafar, öll dekkjakurl til grafar.
„Kurlið er flutt inn sem úrgangur,“ segir Freyr Hermannsson, einn aðstandenda hópsins, og bætir við að það flokkist sem endurvinnsla þegar úrgangur sé tekinn og settur á gervigrasvöll. Um endurvinnslu gildi svo þær reglur að hún megi hvorki valda óþrifnaði né óþægindum.

„Á svona völl fara 100 til 120 tonn af dekkjakurli og reglurnar eru virtar að vettugi.“ Þá hafnar Freyr því að Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur geti ekki gripið inn í. „Þeir fara með eftirlit með þessari reglugerð og geta skikkað Reykjavíkurborg til þess að þrífa þetta.“

Í samantektinni sem fylgir umsögn hópsins er meðal annars bent á að ekki hafi verið brugðist við áskorun læknafélagsins 2010 um bann við notkun dekkjakurls.

„Sveitarfélög hafa dregið lappirnar við endurnýjun dekkjakurlsvalla og haldið hefur verið áfram að nota kurl úr úrgangsdekkjum.“ Bent er á að efni í kurlinu geti haft alvarleg og oft óafturkræf áhrif á heilsu manna og á umhverfið.

„Sum þeirra eru þekkt fyrir að geta valdið krabbameini, ófrjósemi og stökkbreytingum. Dekkjakurl inniheldur allt að 40 prósent sót sem fyrir utan að valda óþrifnaði og óþægindum er talið krabbameinsvaldandi. Þegar kurlið eldist myndar það ryk sem hefur áhrif á astma og veldur ofnæmi. Í vatni á völlunum, sem rennur út á skólalóðir, geta verið þungmálmar í því magni að vatnið telst mjög mengað.“

Hópurinn segir sum sveitarfélög hafa brugðist við en önnur hafi sýnt málinu lítinn áhuga. Í þeim hópi sé Reykjavíkurborg.


Tengdar fréttir

Ung knatt­spyrnu­kona rekur öndunar­færa­sjúk­dóm til dekkjakurls

Ung knattspyrnukona í Fram telur að bein tengsl séu á milli öndunarfærasjúkdóms sem hún glímir við og þeirri staðreynd að hún hefur spilað undanfarin 5 ár á velli sem þakinn er heilsuspillandi dekkjakurli. Hér áður fyrr var hún alltaf með sterk og heilbrigð lungu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×