Innlent

Segir undantekningu ef hjólaakreinarnar eru rétt nýttar

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bílstjórinn ók á brott skömmu eftir að Páll tók myndina.
Bílstjórinn ók á brott skömmu eftir að Páll tók myndina. mynd/páll
„Þetta er viðvarandi vandamál. Ég fer þarna tvisvar á dag og það er nær aldrei hrein braut. Það er alltaf einhver fyrir,“ segir Páll V. Bjarnason um hjólastígana á Hverfisgötu.

Páll er arkitekt og er með stofu sem er staðsett á Laugarvegi. Hann hjólar þessa leið daglega í og úr vinnu. Er hann var á leiðinni til vinnu í gær hafði rútu verið lagt á hjólaakreinina.

„Ég stoppaði hjá honum, bankaði á rúðuna hjá bílstjóranum og benti honum kurteisislega á að þetta væri hjólarein sem hann væri á. Hann gerði sér fullkomna grein fyrir því og spurði mig á móti hvar hann ætti eiginlega að leggja. Ég tjáði honum að hjólaakreinin væri ekki staðurinn en svar hans við því var að honum væri nokkuð sama,“ segir Páll.

Undantekning ef akreinarnar eru rétt nýttar

Samkvæmt Páli eru það ekki aðeins rútur og sendibílar sem leggja þarna heldur er einnig algengt að sjá þarna einkabíla. Myndinni deildi Páll í hópnum Samgönguhjólreiðar á Facebook og eru margir sem taka undir þessa ábendingu hans.

„Þetta er ekki það eina. Það er fólk sem gengur á þeim og svo er talsvert um það að hjólreiðafólk hjóli á móti umferð. Það er akrein beggja vegin götunnar og það er einstefna á þeim báðum.“

Hann segir hjólastígana á Hverfisgötu vera eina mestu bragarbót í miðbænum varðandi hjólamenninguna og að framkvæmdin hafi verið hin metnaðarfyllsta af hálfu borgarinnar. „En það er mjög sorglegt að þær skuli ekki virka því menn virða þær ekki.“

Vonar að leysist úr málinu innan skamms

„Við reynum að taka tillit til allra og stoppa á stöðum þar sem við truflum sem minnst,“ segir Kristján Daníelsson framkvæmdastjóri Reykjavík Excursions Kynnisferða. „Það er þannig að bílar mega staðnæmast og hleypa út fólki og það er enginn vísvitandi að reyna að stöðva umferð.“

Kristján segir það því miður svo að aðstæðurnar í miðbæ Reykjavíkur séu ekki eins og best verður á kosið fyrir aðkomu hópferðabíla. Hann vonast til þess að í samvinnu við borgaryfirvöld takist að skapa betra umhverfi en eins og staðan er í dag geti það komið fyrir að bílar þurfi að stoppa á óheppilegum stöðum.

„Þegar það gerist þá reynum við að hafa það í eins stutta stund og hægt er. Ef það er í lengri tíma þá brýnum við það fyrir bílstjórum okkar að fara þá í burtu, taka hring og koma þá aftur til að trufla umferð sem minnst,“ segir Kristján.

Hann segir að rútufyrirtæki og Samtök ferðaþjónustunnar lengi hafa bent á þennan vanda en framan af hafi það skilað litlu. Nú sé hins vegar hafið samtal milli fyrirtækjanna og borgaryfirvalda sem hann vonar að skili árangri. „Það sem myndi laga þennan vanda er að hafa stæði með reglulegu millibili þar sem hópferðabílar geta tekið farþega upp í. Sú vinna er hafin og skilar vonandi árangri áður en langt um líður,“ segir Kristján.

Ýmsir notendur Twitter hafa tekið myndir af bílum sem lagt hefur verið á hjólreiðastígana á Hverfisgötunni og sett inn á samskiptavefinn undir #aðförin. Í fréttinni má sjá nokkrar slíkar færslur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×