Innlent

Segir ný gögn og ítarlegri rannsókn á þeim eldri hafa skipt sköpum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ný gögn í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum og ítarlegri rannsókn á eldri gögnum er aðalástæða þess að endurupptökunefnd féllst á að mál fimm sakborninga verði tekin upp að nýju. Þetta segir Lúðvík Bergvinsson, lögmaður tveggja sakborninga; Tryggva Rúnars Leifssonar og Sævars Ciesielski. Hann segist afar sáttur með niðurstöðu nefndarinnar.

„Það sem fyrst og fremst skipti máli þarna var að það var farið mjög ítarlega í öll gögn sem til voru og fleiri gagnað afla. Það var farið ítarlega yfir öll samtímagögn, dagbækur, til dæmis frá fangelsinu, skýrslur úr yfirheyrslum og fleira, og það er mjög margt sem kemur í ljós. Til dæmis voru þetta yfir þrettán hundruð blaðsíður bara hjá Sævari,“ segir Lúðvík í samtali við Vísi.

Endurupptökunefnd hefur tekið sér þrjú ár í að komast að niðurstöðu, en beiðni um endurupptöku var lögð fram af Erlu Bolladóttur og Guðjóni Skarphéðinssyni, sem dæmd voru í eins og tíu ára fangelsi fyrir aðild þeirra að málinu. Nefndin hafnaði beiðni Erlu.

Gríðarlega mikilvægt fyrir æru þeirra

Lúðvík segir að niðurstaðan hefði komið sér á óvart, hvort sem hún hefði verið jákvæð eða neikvæð.

„Ég er mjög sáttur við það að þessi mál skuli verða endurupptekin. Ég er líka mjög sáttur við það að það er fallist á þann málatilbúnað sem við lögðum upp með. Það má segja sem svo að hvort sem niðurstaðan hefði orðið neikvæð eða jákvæð þá hefðu báðar niðurstöður komið á óvart. Því í ljósi sögunnar hefur mikið verið reynt að fá þessi mál endurupptekin en ekki tekist. En miðað við þau gögn sem við vorum búin að leggja í þetta, því það er komið á fjórða ár frá því að þau komu til mín, þá hefði það líka komið á óvart ef þetta hefði ekki verið endurupptekið.“

Skjólstæðingar Lúðvíks, Tryggvi Rúnar og Sævar, eru báðir látnir. Lúðvík segir það skipta sköpum fyrir æru þeirra að málin verði endurupptekin. „Þetta mál hafa líka tekið alveg óskaplega á fjölskyldu og aðstandendur í gegnum tíðina þannig að þetta skiptir alveg gríðarlega miklu máli,“ segir hann.

Aðspurður segir hann næstu skref í höndum ríkissaksóknara sem muni meta það hvenær málið fari fyrir dóm. Mikilvægt sé að málin séu unnin fljótt enda tæplega fjórir áratugir frá því að dómur féll.

„Það er auðvitað mjög mikilvægt að þetta mál fái afgreiðslu sem allra fyrst enda er það grundvallarregla í sakamálum, þó hún eigi kannski ekki beint við núna eftir fjóra áratugi, að málmeðferðir gangi hratt og vel fyrir sig,“ segir Lúðvík.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×