Innlent

Segir frásögn Guðrúnar Bryndísar ósanna

Bjarki Ármannsson skrifar
Benedikt segir atriði í frásögn Guðrúnar Bryndísar ósönn.
Benedikt segir atriði í frásögn Guðrúnar Bryndísar ósönn.
Benedikt Þór Gústafsson, meðstjórnandi kjördæmasambands Framsóknarflokksins, segir að fullyrðingar Guðrúnar Bryndísar Karlsdóttur um að hann hafi kallað hana á fund sinn til að brýna fyrir henni „kristin gildi flokksins“ fyrr á árinu séu ósannar. Hann segist jafnframt ekki styðja málflutning innan flokksins um að afturkalla lóð til múslima og að fordómar gegn öðrum trúarbrögðum eigi ekkert skylt við stefnu Framsóknarflokksins.

Í gærkvöldi var fjallað um grein sem Guðrún Bryndís, sem skipaði annað sæti á framboðslista Framsóknar í Reykjavík fyrr á árinu, birti á vefsíðu Kvennablaðsins. Þar segir hún meðal annars að Benedikt hafi á fundi með henni sagt að þeir sem kæmust í borgarstjórn fyrir hönd flokksins ættu að beita sér gegn byggingu mosku í borginni. Eins og greint hefur verið frá sagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarmanna og flugvallarvina, í samtali við Vísi að hún vildi afturkalla lóð þar sem ætlað er að byggja mosku, en þau ummæli hafa verið umdeild.

Yfirlýsing Benedikts í heild sinni hljóðar svo:

Ég harma yfirlýsingu Guðrúnar Bryndísar sem birtist í Kvennablaðinu þann 28. maí sl. þar sem hún er ósönn. Eini tveggja manna fundur okkar átti sér stað þegar mér var falið að fara yfir þá stöðu sem komin var upp eftir að Óskar Bergson hafði stigið til hliðar vegna stöðu framboðsins í skoðanakönnunum og að vænta mætti uppstokkunar á framboðslistanum. Ég tek það fram að ég hef aldrei verið formaður né varaformaður kjörstjórnar eins og haldið er fram.



Ég hef ekki stutt þann málflutning sem nú er viðhafður um afturköllun lóðar múslima eða annara trúfélaga hér á landi. Þvert á móti hef ég andmælt þessum málflutningi við félaga okkar innan Framsóknarflokksins. Ég hafði samband við þingflokksformann Framsóknarflokksins og tók undir hennar sjónarmið auk þess sem ég lýsti andstöðu minni við aðra framámenn flokksins. Ég er kristinn maður og harma þá umræðu sem hefur skapast um fordóma gagnvart öðrum trúarbrögðum. Sú umræða á ekkert skylt við stefnu Framsóknarflokksins.

Blaðamaður Morgunblaðsins átti við mig samtal um daginn og spurði mig hvort fjallað hafi verið um málið í kosningastjórn eða hvort stæði til að fjalla um það. Ég kvað svo ekki vera, né hafi málið ekki verið sett á dagskrá sannleikanum samkvæmt. Eftir á að hyggja hefði ég átt að gera blaðamanninum skýra grein fyrir minni afstöðu og lýsa andúð minni á allri mismunun og fordómum í garð mismunandi trúfélaga. Ég sé mjög mikið eftir því nú að hafa ekki gert það en á þeim tíma taldi ég að mínar prívat skoðanir ættu enga aðkomu að málinu.

 


Tengdar fréttir

„Er búið að dömpa mér?“

Ef fréttamenn hringja í þig er svarið: "No comment“ við öllu rifjar Guðrún Bryndís Karlsdóttir upp.

Sveinbjörg Birna kæmist í borgarstjórn

Niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sýna að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, kæmist í borgarstjórn. Þetta er fyrsta skoðanakönnunin sem birtist síðan hún lét umdeild ummæli um mosku í Reykjavík falla.

Oddviti Framsóknar vill afturkalla lóð til múslima

"Ég hef búið í um eitt ár í Sádí Arabíu og byggi þessa skoðun mína ekki á fordómum, heldur reynslu," segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarflokksins og flugvallarvina. Hún telur að á meðan hér á landi sé þjóðkirkja eigi ekki að úthluta lóðar til byggingu mosku eða sambærilegra húsa annarra trúfélaga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×