Innlent

Segir Dróma setja kirkjunni afarkosti

Brjánn Jónasson skrifar
Fjölbreytt starf fer fram í Langholtskirkju og safnaðarheimilinu segir formaður sóknarnefndarinnar.
Fjölbreytt starf fer fram í Langholtskirkju og safnaðarheimilinu segir formaður sóknarnefndarinnar. Fréttablaðið/Stefán
„Það er hálfgerð handrukkun í gangi hérna, en við trúum á upprisuna,“ segir Guðbjörg Jóhannesdóttir, sóknarprestur í Langholtskirkju. Sóknin á nú í samningaviðræðum við Dróma vegna skulda safnaðarins, sem eru á annað hundrað milljóna króna.

Guðbjörg Jóhannesdóttir
„Það eru eiginlega engar samningaviðræður. Þeir hafa sett okkur afarkosti sem eru með þeim hætti að þær myndu binda söfnuðinn til næstu 30 ára svo það yrði varla nokkur starfsemi hér,“ segir Guðbjörg.

Skuldir sóknarinnar eru vegna orgelkaupa og viðgerða á kirkjunni, og eru frá því um síðustu aldamót, segir Björg Dan Róbertsdóttir, formaður sóknarnefndar Langholtskirkju. Hún segir óheppilegt hversu lítill gangur virðist vera á viðræðunum.

„Ég trúi því að þetta muni leysast farsællega,“ segir Björg. Hún vill ekki upplýsa nákvæma upphæð skuldarinnar, en staðfestir að hún standi í yfir 100 milljónum króna í dag. 

Lánin sem sóknin tók voru ekki í erlendri mynt, en hafa engu að síðar hækkað verulega frá hruninu, segir Björg. Þá segir hún að ákveðinn forsendubrestur hafi orðið þar sem sóknargjöld sem renna til kirkjunnar hafa dregist saman, sem og aðrar tekjur vegna viðburða í safnaðarheimilinu.

Björg Dan Róbertsdóttir
Safnaðarheimilið var sett að veði fyrir lánunum, en þar sem óheimilt er að veðsetja kirkjubyggingarnar er engin hætta á að sóknin tapi kirkjunni, segir Björg.

Hún segir stöðuna vissulega erfiða fyrir sóknina, en segir fjölmarga sjálfboðaliða sem komi að starfinu gera söfnuðinum kleyft að halda uppi öflugu starfi þrátt fyrir fjárhagsörðugleikana.

Hún nefnir sem dæmi að mikil áhersla hafi verið lögð á að halda kórastarfi gangandi. Þá komi vikulega stór hópur eldri borgara í safnaðarheimilið.

„Það er stundum talað eins og starf kirkjunnar einskorðist við eina messu á sunnudögum, en það er svo langt frá raunvöruleikanum,“ segir Björg.

Samkvæmt upplýsingum frá Dróma er mál Langholtskirkju í samningaferli, en frekari upplýsingar um málið verða ekki gefnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×