Battlað í borginni - Hver er íslenskastur?

Í fjórða þætti af Battlað í borginni taka dansandi unglingarnir fimm, auk íslenskra félaga þeirra, þátt í spurningakeppninni: Hver er íslenskastur? Í þessu þjóðernisprófi er m.a. spurt út í eitt af stórvirkjum íslenskrar bókmenntasögu. Svarið má heyra í myndbandinu sem hér fylgir. Fjórði þáttur af Battlað í borginni fer í loftið á mánudagskvöld, 230. maí, kl. 20:25, á Stöð 2. Luis fer í Bláfjöll í fyrsta skipti á ævinni, hópurinn allur spreytir sig á ýmsum þjóðernisþrautum og menn reyna að átta sig á hvað það þýðir að vera Íslendingur og hver hún er eiginlega, þessi íslenska menning. Umsjón og framleiðsla þáttanna er í höndum Lóu Pind Aldísardóttur, myndatökumaður er Egill Aðalsteinsson, klippingu annast Ólafur Chelbat.

1838
00:29

Vinsælt í flokknum Stöð 2