Sport

Schwarzenegger elskar Conor

Ekki ónýtt að hafa Tortímandann á sínu bandi.
Ekki ónýtt að hafa Tortímandann á sínu bandi. vísir/getty
Aðdáendahópur Írans Conor McGregor fer sífellt stækkandi og nýjasti aðdáandinn er ekki af ódýrari gerðinni.

Sjálfur Arnold Schwarzenegger er fallinn fyrir Íranum kjaftfora og lét hann vita af því á Twitter.

Þar óskaði Tortímandinn honum til hamingju með að hafa „eytt" enn einum andstæðingnum. Hann sagðist bíða spenntur eftir titilbardaganum gegn Jose Aldo þar sem hann ætlar að mæta og horfa.

McGregor svaraði Schwarzenegger um hæl. Þakkaði honum fyrir og bætti við að það yrði heiður að fá hann til Írlands þar sem hann vill að bardaginn gegn Aldo fari fram.

Þjálfari McGregor, John Kavanagh, var nánast orðlaus eftir að hafa séð þessi samskipti og sagði einfaldlega: „Þetta er bilun."

Frábær mæting var á bardagakvöldið hjá McGregor og aldrei hafa fleiri horft á UFC hjá Fox Sports. Að gera McGregor að stórstjörnu í Bandaríkjunum gengur því vel hjá UFC.

Hér að neðan má sjá bardaga Conor og Dennis Siver sem og tístið frá Schwarzenegger.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×