Fótbolti

Sara og stöllur hennar í erfiðum málum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Sara í leik með Wolfsburg.
Sara í leik með Wolfsburg. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir og félagar í Wolfsburg réðu ekki við hið frábæra lið Lyon í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Lyon vann leikinn 0-2 með mörkum frá Abily og Marizsán á 62. og 74. mínútu.

Franska liðið fer því með tveggja marka veganesti heim í síðari leikinn og stendur afar vel að vígi.

Sara Björk var venju samkvæmt í liði Wolfsburg og spilaði allan leikinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×