Innlent

Sandra verði nýr sveitarstjóri

garðar örn úlfarsson skrifar
Sandra brá Jóhannsdóttir. Sveitarstjóri á heimaslóð.
Sandra brá Jóhannsdóttir. Sveitarstjóri á heimaslóð. Fréttablaðið/GVA
Meirihluti sveitarstjórnar Skaftárhrepps hyggst ráða Söndru Brá Jóhannsdóttur sem sveitarstjóra. Sandra er úr Skaftárhreppi og hefur meðal annars verið verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Fulltrúar minnihluta Ó-listans sögðust sitja hjá við ráðninguna þar sem ekki hefði verið haft samráð við þá er Eygló Kristjánsdóttur, fyrrverandi sveitarstjóra, var sagt upp og þeir „ekki fengið viðhlítandi skýringar á þeim gjörningi“. Þetta hefði þó ekkert að gera með afstöðu þeirra til verðandi sveitarstjóra, Söndru Brár Jóhannsdóttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×