Tíska og hönnun

Samstarfi 66°Norður og Soulland fagnað með teiti í Kaupmannahöfn

Stefán Árni Pálsson skrifar
66°Norður fagnaði samstarfi sínu við danska „streetwear“ merkið Soulland nú á dögunum með teiti í verslun íslenska fataframleiðandans í Kaupmannahöfn.

Góð stemning var í teitinu og margt gesta. Danska hljómsveitin Cancer kom m.a. fram en söngvari sveitarinnar er einnig aðalsöngvari sveitarinnar When Saints Go Machine sem margir Íslendingar ættu að kannast við en sveitin hefur nokkrum sinnum spilað hér a landi m.a. á Iceland Airwaves og Sónar hátíðinni.

Samstarf fyrirtækjanna gengur út á fjóra jakka sem byggðir eru á tæknilegustu jökkum 66°Norður sem Soulland stílfærði í sínum anda án þess að fórna tæknilegum eiginleikum. Samstarfið er áhugavert þar sem merkin eru nokkuð ólík en Soulland spratt upp árið 2002 í kringum hjólabrettasenuna í Kaupmannahöfn og 66°Norður sem hefur framleitt fatnað á Íslendinga í 90 ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×