Innlent

Samkomulag um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ

Árni Páll og Haraldur undirrituðu samninginn í dag. „Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga,“ sagði Haraldur. Mynd/www.moso.is
Árni Páll og Haraldur undirrituðu samninginn í dag. „Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga,“ sagði Haraldur. Mynd/www.moso.is
Félags- og tryggingamálaráðherra og bæjarstjóri Mosfellsbæjar undirrituðu í dag samning um byggingu hjúkrunarheimilis í Mosfellsbæ. Ráðgert er að hefja framkvæmdir í sumar og að heimilið verði tekið í notkun vorið 2012.

Í samningnum er gert ráð fyrir að Mosfellsbær taki að sér að hanna og byggja 30 rýma hjúkrunarheimili við Hlaðhamra í Mosfellsbæ. Mosfellsbær leggur jafnframt til lóð undir bygginguna, að fram kemur í tilkynningu. Félags- og tryggingamálaráðuneytið mun á 40 árum greiða Mosfellsbæ hlutdeild í húsaleigu vegna húsnæðis sem ígildi stofnkostnaðar. Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, gekkst nýlega fyrir lagabreytingu sem heimilar Íbúðalánasjóði að lána sveitarfélögum fyrir öllum byggingakostnaði hjúkrunarheimila og er framkvæmdin í Mosfellsbæ byggð á þeim grunni.

Níu sveitarfélög hafa átt í viðræðum við ríkið um byggingu hjúkrunarheimilis og hefur Mosfellsbær verið í forsvari fyrir þau. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við hjúkrunarheimilið Í Mosfellsbæ hefjist í sumar og það verði tekið í notkun vorið 2012.

Langþráður draumur Mosfellinga

„Með tilkomu hjúkrunarheimilis rætist langþráður draumur Mosfellinga, en bæjaryfirvöld hafa frá árinu 1998 leitað samþykkis ráðuneytisins um heimild til byggingar og rekstur hjúkrunarheimilis. Með tilkomu heimilisins verður síðasti hlekkurinn í mikilvægri þjónustukeðju við íbúa að veruleika," segir Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri Mosfellsbæjar, í tilkynningunni.

Árni Páll sagði við þetta tækifæri að einkar ánægjulegt væri að nú yrði af þessum langþráðu framkvæmdum. Löngu væri tímabært að hefja endurbyggingarátak og sérstaklega ánægjulegt væri að hægt væri að hleypa því af stokkunum á tímum þrenginga í efnahagslífinu. Framundan væri uppbygging 360 rýma sem kallaði á 1200 ársverk í uppbyggingunni, vítt og breitt um landið. Með þessu átaki náist að loka öllum tví- og þríbýlum á hjúkrunarheimilum og aðstaða þeirra sem þjónustuna njóta þannig bætt til muna.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×