Innlent

Samkeppniseftirlitið skoði óeðlilegan hagnað kortafyrirtækja

Höskuldur Kári Schram skrifar
Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokks segir að hagnaður greiðslukortafyrirtækja hér á landi sé óeðlilega mikill og vill að Samkeppniseftirlitið skoði málið. Fyrirtækin hafa á undanförnum árum hagnast um marga milljarða.

Stærstu greiðslukortafyrirtæki landsins, Borgun og Valitor, högnuðust samtala um tæpan einn og hálfan milljarð árið 2014 en þar af nam hagnaður Borgunar tólf hundruð milljónum króna. Á aðalfundi Borgunar í byrjun síðasta árs var samþykkt að greiða út 800 milljón króna arð til hluthafa.

Vilhjálmur Bjarnason þingmaður Sjálfstæðisflokks furðar sig á því að fyrirtæki sem sinni greiðslumiðlun séu hagnast um jafn háar fjárhæðir.

„Mér er sérstaklega hugsað til þjónustugjalda hjá kortafyrirtækjum núna. Vegna þess að það kemur á daginn að það verður til einhver ofurhagnaður í jafn einfaldri starfsemi og greiðsluhirðingu kortafyrirtækjanna, eins og Borgun er. Það er mér algjörlega óskiljanlegt að það skuli ekki vera fjallað um það hvernig þessi ofurhagnaður kemur fram. Hann kemur ekki fram af himnum ofan. Hann kemur beint úr vasa neytenda,“ segir Vilhjálmur.

Hann segir að eftirlitsstofnanir í öðrum löndum hafi verið að skoða starfsemi kortafyrirtækja og kallar eftir því að Samkeppniseftirlitið geri slíkt hið sama hér á landi.

„Evrópusambandið hefur verið að horfa í kortafyrirtækin á undanförnum árum og ýmislegt hefur komið fram þar. Ég tel að Neytendastofa og Samkeppnieftirlitið eigi að líta til þessara atriðið því það er ekki eðlilegt að það skuli kom fram ofurhagnaður í jafn einfaldri starfsemi og þessari. þá er ég að tala um að það skuli verða til eitthvert ofurverð á fyrirtæki sem heitir Borgun,“ segir Vilhjálmur.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×