Skoðun

Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila í neyðarþjónustu

Þuríður B. Ægisdóttir skrifar

Í önnum dagsins berast okkur reglulega fréttir af válegum atburðum. Atburðum sem setja mark á þá er fyrir þeim verða – jafnvel til lífstíðar. Við finnum til samkenndar með þeim sem hlut eiga að máli en fljótt reikar hugurinn annað. Þrátt fyrir að athygli samborgaranna sé ekki lengur til staðar þá eru á bak við öll váleg tíðindi einstaklingar sem sitja eftir með afleiðingarnar. Einstaklingar sem orðið hafa fyrir áfalli þar sem öryggi þeirra, heilsu og jafnvel lífi var ógnað á einhvern hátt. Á þeim stundum reynir á samfélagið okkar og þann mannauð sem þar starfar við það að sjá til þess að skaðinn verði sem minnstur og að viðkomandi fái þá aðstoð sem hann þarf á að halda. Störf viðbragðsaðila eru fjölbreytt og aðkoma þeirra mismunandi, en eitt eiga þeir sameiginlegt, þ.e. að þeirra nýtur við þegar áföll knýja dyra.



Einn af þessum viðbragðsaðilum er lögreglan og getur aðkoma hennar varað allt frá augnablikinu rétt eftir tilkynningu atviks þar til málinu er lokið fyrir dómi. Samskipti lögreglu við brotaþola, aðstandendur og hugsanlegan geranda geta varað í þó nokkurn tíma. Fyrir lögreglumann að koma að og taka þátt í lífi fólks á þeirri stundu sem það er hvað berskjaldaðast getur reynt á og haft áhrif á hann sem einstakling allt hans líf. Að sinna krefjandi og oft á tíðum erfiðum verkefnum sem snúa að velferð skjólstæðinga kallar á það að viðkomandi sé í stakk búinn til að koma að verkefninu og leysa það á sem farsælastan hátt. Þess vegna er svo mikilvægt að viðkomandi hafi aðstæður til að vaxa og dafna í starfi sem reynir á, er streituvaldandi og gerir kröfu um þekkingu, skilning, jákvætt hugarfar og seiglu.



Auður fyrir samfélagið

Hér á landi höfum við aðgang að öflugum og færum einstaklingum sem sinna viðbragðsþjónustu. Í því felst mikill auður fyrir samfélagið og það er mikilvægt að hlúð sé að þeim sem sinna slíkum störfum. Nauðsynlegt er að viðbragðsaðilar hafi aðgang að stuðningi, fræðslu og þjálfun sem gerir þeim kleift að sinna sínu starfi á sem bestan hátt. Þar er einna mikilvægast að þeir fái fræðslu um hugsanlegar afleiðingar starfa þeirra á þá sjálfa og leiðir til að takast á við þær afleiðingar. Því er sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila einn af þeim þáttum sem stuðlar að því að þeir sem starfa við neyðarþjónustu þrífist sem best.



Því er ánægjulegt að Landssamband lögreglumanna, Neyðarlínan, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Rauði kross Íslands, Landhelgisgæsla Íslands, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Háskólinn í Reykjavík og Sálfræðingarnir Lynghálsi, www.salfraedingarnir.is, standi fyrir ráðstefnu á Hótel Nordica 2. til 4. nóvember næstkomandi sem ber yfirskriftina „Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila í neyðarþjónustu“.



Ráðstefnan er mikilvægt innlegg í umræðuna um stuðning við viðbragðsaðila og eru allir þeir sem gegna slíkum störfum eindregið hvattir til að mæta.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×