Salan hjá Örnu áttfaldast eftir að Samkeppniseftirlitið sektaði MS Gunnar Atli Gunnarsson skrifar 24. júlí 2016 11:47 Samkeppniseftirlitið sektaði Mjólkursamsöluna fyrr í júlí um 480 milljónir króna vegna alvarlegrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu. Vísir/Pjetur
Salan hjá mjólkurvinnslunni Örnu í Bolungarvík hefur áttfaldast frá því Samkeppniseftirlitið sektaði Mjólkursamsöluna fyrr í mánuðinum. Framkvæmdastjóri Örnu segir fyrirtækið ekki hafa undan við framleiðslu og bæta þurfi við starfsfólki. Samkeppniseftirlitið sektaði Mjólkursamsöluna fyrr í júlí um 480 milljónir króna vegna alvarlegrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu. Var það niðurstaða eftirlitsins að MS hefði selt hrámjólk til samkeppnisaðila á mun hærra verði en aðildar tengdir MS greiddu fyrir vöruna en Arna ehf. er eitt þeirra fyrirtækja sem þurfa að kaupa hrámjólk af MS. Hálfdán Óskarsson, framkvæmdastjóri Örnu, segir mikla söluaukningu hafa orðið hjá fyrirtækinu eftir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. „Það varð mikil sprenging. Við erum bara á fullu og höfum varla undan að framleiða.“ Hann segir söluna hafa aukist íöllum þeirra vöruflokkum, sérstaklega í drykkjarmjólkinni sem sett var á markað nú í júní. Hálfdán segir að salan á mjólk hafi áttfaldast hjá fyrirtækinu og hafi ekki undan við framleiðslu. „Það hefur verið töluvert um vantanir í búðum en við höfum verið að auka. Maður veit ekki hvar þetta endar en við gerum okkar besta til að anna eftirspurn.“ Sex starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu og hefur vinnudagur þeirra lengst mikið undanfarnar vikur. „Við reiknum með að bæta við okkur starfsfólki núna eftir sumarleyfin. Það hefur verið vöxtur hjá okkur allt árið,“ segir Hálfdán Óskarsson, framkvæmdastjóri Örnu.
Mest lesið Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Viðskipti innlent „What do you mean by shit-mix, are you mixing the shit?“ Atvinnulíf Bremsutrix Polestar 2 sannaði sig þegar elgir stukku út á veginn Samstarf Sofnar í leikhúsi, á tónleikum, í kirkjum og fleiri stöðum Atvinnulíf Mál tengd Base Parking á borði Neytendasamtakanna í hverjum mánuði Neytendur Deilur og leiðindi við vinnufélaga og góð ráð Atvinnulíf „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Viðskipti innlent 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Viðskipti innlent Landsbankinn lækkar vexti Neytendur Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Engin löndun í bili í Grindavík Þrír nýir stjórnendur hjá Styrkási Bankastjóri segir Landsbankann ekki vera ríkisfyrirtæki Tæplega þriggja milljarða króna viðsnúningur 27 vilja stýra fasteignafélaginu Þórkötlu Kvika tók kipp Kaupin á Lyfju krefjast að óbreyttu íhlutunar Samkeppniseftirlitsins „Þessi viðskipti verða ekki að veruleika með mínu samþykki“ Samþykkja tilboð Landsbankans í TM Forstjóraskipti hjá Play Slóð viðskipta sakbornings tengist World Class-veldinu Ríkiskaup lögð niður og verkefnin flutt til Fjársýslunnar Ráðinn nýr hagfræðingur ÖBÍ Ríflega helmingur vill ekki skipta við Rapyd Múlakaffi opnar dyrnar í Sjálandi Spá því að verðbólga hjaðni rólega næstu mánuði Í skýjunum með 111 milljarða króna útboðið Fékk greiddar um tíu milljónir í viðbótarlaun Miðaldra reka lestina í framtalsskilum Gjaldþrot N4 nam 89 milljónum króna Sigríður Lovísa hlaut flest atkvæði í stjórnarkjöri VR Hlutfallslega flestar leiguíbúðir á Suðurnesjum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fjármálakerfið standi traustum fótum Opna pílu- og veitingastað á gamla Stjörnutorgi Gefur ekki fimm aura fyrir gagnrýni á Krónuna Eik var ekki kunnugt um skattalagabrot Kristjáns og slítur samstarfi Forstjóraskipti hjá Origo Stefna á skráningu í Kauphöll á næstu mánuðum SFF fá nýtt nafn en verða áfram SFF Sjá meira