Sport

Sagður hafa lamið ólétta unnustu sína en spilar samt

Ray McDonald.
Ray McDonald. vísir/getty
San Francisco 49ers hefur verið gagnrýnt harkalega fyrir að spila Ray McDonald en hann er ásakaður um að hafa gengið í skrokk á óléttri unnustu sinni.

Bæði forseti og þjálfari 49ers hafa sagt að félagið muni ekki aðhafast neitt gegn McDonald fyrr en búið sé að sýna fram á að hann hafi brotið af sér.

Félagið geti ekki refsað honum fyrir eitthvað sem sé ekki meira en sögusagnir í dag.

Lögreglan í San Francisco er að rannsaka málið og rannsókn ætti að ljúka í þessari viku.

Eins og áður segir hafa margir gagnrýnt þá ákvörðun félagsins að leyfa McDonald að spila. Þar á meðal fyrrum borgarstjóri San Francisco og eiginkona hans.

NFL

Tengdar fréttir

Lamdi ólétta unnustu sína

Ray McDonald, leikmaður San Francisco 49ers, hefur verið handtekinn grunaður um að hafa gengið í skrokk á óléttri unnustu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×