Innlent

Sagan af húsunum í Viðey verður sögð

Randver Kári Randversson skrifar
Viðeyjarstofa var endurbyggð á árunum 1986-1988.
Viðeyjarstofa var endurbyggð á árunum 1986-1988. Mynd/Borgarsögusafn Reykjavíkur
Magnús Sædal fyrrum byggingarfulltrúi hjá Reykjavíkurborg mun í kvöld fræða gesti Viðeyjar um endurbyggingu bæði Viðeyjarstofu og kirkju sem stóð yfir á árunum 1986-1988.

Magnús var byggingarstjóri þeirrar endurbyggingar og þekkir sögu húsanna manna best. Hann mun fara yfir sögu húsanna en einnig fjalla um klaustrið sem áður stóð í Viðey og afdrif þess í siðaskiptunum. Þá fáum við að heyra um Skúla Magnússon og byggingu Viðeyjarstofu og kirkjunnar og í leiðinni segir hann okkur frá þeim sem bjuggu Viðeyjarstofu eftir tíð Skúla. Auk þess ætlar hann að segja okkur frá gömlu steinhúsunum á Íslandi. Við munum fylgja Magnúsi í vettvangsskoðun um húsin og fáum tækifæri til þess að spyrja hann spjörunum úr.

Endurbygging húsanna var flókið verk. Magnús er byggingartæknifræðingur frá TÍ 1973, er jafnframt húsasmíðameistari. Hann starfaði fyrir Reykjavíkurborg frá 1974-2012, lengst af sem byggingarfulltrúi og getur því fjallað um þessa áhugaverðu endurbyggingu á bæði faglegan og áhugaverðan hátt.  Flóknu verki sem þessu fylgja margar skemmtilegar sögur endar lumar Magnús á ófáum slíkum.

Gangan hefst kl. 19:30 við Viðeyjarstofu og tekur eina og hálfa til tvær klukkustundir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×