Menning

Safnar fyrir gerð nýrrar hryllingsmyndar

FB skrifar
Söfnun er í fullum gangi á netinu fyrir gerð íslensku ráðgátu- og hryllingsmyndarinnar Ruins. Búið er að safna fyrir hluta af kostnaðinum en fjárhagsáætlun myndarinnar hljóðar upp á 32 milljónir og eiga tökur að hefjast næsta vor.

"Við erum með hópsöfnun á síðunni Ruinsthemovie.com þar sem fólk getur styrkt myndina. En helstu styrkirnir koma frá kvikmyndasjóðum og sá fyrsti er kominn frá Evrópu unga fólksins," segir leikstjórinn Vilnius Petrikas. Hann er fæddur í Litháen en fluttist ungur að árum hingað til lands. Hann útskrifaðist úr Kvikmyndaskóla Íslands fyrir tveimur árum og hefur gert yfir fimm stuttmyndir.

Ruins er fyrsta mynd Vilnius í fullri lengd. Hún fjallar um fornleifa- og guðfræðinginn Dr. Malphas sem leitar að hinu svokallaða hliði helvítis á Íslandi. Hann ferðast til Vestfjarða ásamt tíu manna hópi fólks sem vill komast í burtu frá stressinu í borginni. Smám saman byrja skrítnir hlutir að gerast sem hafa ófyrirséðar afleiðingar í för með sér.

Rúnar Freyr Gíslason leikur einn úr þessum tíu manna hópi, auk þess sem Magnús Ólafsson verður í hlutverki vestfirsks bónda. Hluti myndarinnar verður tekinn upp á Vestfjörðum, og í Surtshelli.



Merki myndarinnar.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×