Sport

Sævar og Helga María eru skíðafólk ársins 2014

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sævar Birgisson og Helga María Vilhjálmsdótti
Sævar Birgisson og Helga María Vilhjálmsdótti Vísir/Ernir
Skíðagöngumaðurinn Sævar Birgisson og stórsvigskonan Helga María Vilhjálmsdóttir voru valin skíðafólk ársins 2014 af Skíðasambandi Íslands.

Þetta er í fyrsta sinn sem Helga María Vilhjálmsdóttir er valin skíðakona ársins en Sævar var einnig valinn fyrir tveimur árum.

Hér fyrir neðan má sjá rökstuðning Skíðasambands Íslands fyrir vali sínu í ár.



Skíðamaður ársins er Sævar Birgisson

Sævar Birgisson úr Skíðagöngufélagi Ólafsfjarðar er skíðamaður ársins 2014. Sævar náði þeim frábæra árangri á árinu að keppa fyrir hönd Íslands á Ólympíuleikunum í Sotsjí og er það í fyrsta skipti í 20 ár sem Ísland á skíðagöngumann á Ólympíuleikum.  

Árangur Sævars á Ólympíuleikunum var mjög góður en hann varð í 72. sæti í sprettgöngu og 74. sæti í 15km göngu.  Sævar keppti á alþjóðlegum mótum víða erlendis auk þess að æfa af kappi á Íslandi, Ítalíu, Noregi og Svíþjóð.  

Sævar náði sínum besta árangri á ferlinum á World Cup móti í Toblach á Ítalíu í janúar.  Sævar varð þar í 69 sæti aðeins 12 sekúndum á eftir fyrsta manni og fékk fyrir það 92 FIS punkta en lágmarkið fyrir Ólympíuleikana var 120 FIS punktar

Sævar varð einnig fimmfaldur Íslandsmeistari í skíðagöngu en hann sigraði allar einstaklings-greinar á Skíðamóti Íslands sem fram fór á Akureyri.  Auk þess að verða Íslandsmeistari í 20km skíðagöngu karla sem fram fór fyrr um veturinn.  Sævar varð einnig bikarmeistari SKÍ á síðasta tímabili.



Skíðakona ársins er Helga María Vilhjálmsdóttir

Helga María Vilhjálmsdóttir úr ÍR er skíðakona ársins 2014. Helga átti gott ár og bætti punktastöðuna sína í öllum greinum sem telst frábært, en upp úr stendur að hún náði mjög góðum mótum í stórsvigi.

Helga náði 2. sæti á móti í Norefjell þar sem hún fékk 28,23 punkta og svo 13. Sæti og 27,92 punkta á móti í Hemsedal. Helga æfði gríðarlega vel á árinu og tók miklum framförum.

Hápunktur ársins hjá Helgu var auðvitað að keppa á Ólympíuleiknum í Sotsjí. Helga keppti í þremur greinum í Sotsjí þar sem hún varð í 29. sæti í risasvigi sem er góður árangur, 46. sæti í stórsvigi og 34. sæti í svigi.

Helga síðan varð íslandsmeistari í stórsvigi og samhliðasvigi, einnig sigraði hún á Icelandair Cup mótaröðinni.



Skíðafólk ársins undanfarin ár:

2014 - Helga María Vilhjálmsdóttir og Sævar Birgisson

2013 - María Guðmundsdóttir og Einar Kristinn Kristgeirsson

2012 - María Guðmundsdóttir og Sævar Birgisson

2011 - Íris Guðmundsdóttir og Björgvin Björgvinsson

2010 - Íris Guðmundsdóttir og Björgvin Björgvinsson

2009 - Íris Guðmundsdóttir og Björgvin Björgvinsson

2008 - Dagný Linda Kristjánsdóttir og Björgvin Björgvinsson

2007 - Dagný Linda Kristjánsdóttir og Björgvin Björgvinsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×