Innlent

Rúta með 18 farþega valt við Heimaland

Birgir Olgeirsson skrifar
vísir/stefán
Rúta valt rétt austan við Heimaland, milli Hvolsvallar og Víkur, nú rétt fyrir hádegi í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi voru átján manns í rútunni þegar hún valt og hlutu þrír þeirra minniháttar meiðsl. Ekki er vitað um tildrög slyssins en gríðarleg hálka er á vettvangi að sögn lögreglunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×