Innlent

Rúta fauk út af veginum undir Hafnarfjalli

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Vindhviður undir Hafnarfjalli eru allt að fjörutíu metrar á sekúndu.
Vindhviður undir Hafnarfjalli eru allt að fjörutíu metrar á sekúndu. Vísir/Vilhelm
Rúta með tugi ferðamanna innanborðs fauk út af veginum undir Hafnarfjalli. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu vor um fjörutíu manns í rútunni en búið er að senda bíla til að sækja fólkið. RÚV greindi fyrst frá.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var hún ekki kölluð á slysstað. 



Sjá einnig: Fylgstu með storminum „í beinni“



Búið er að vara við miklum vindi á þessu svæði en í tilkynningu frá Veðurstofunni frá því í morgun segir að reiknað sé með hviðum 30-40 metrum á sekúndu undir Hafnafjalli og á Kjalarnesi.

Fylgstu með veðrinu á veðursíðu Vísis.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×