Fótbolti

Rúnar og félagar eiga möguleika á að komast í úrslitakeppnina

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rúnar varði mark Nordsjælland í kvöld.
Rúnar varði mark Nordsjælland í kvöld. vísir/getty
Nordsjælland á enn möguleika á að komast í úrslitakeppnina um danska meistaratitilinn eftir 5-1 stórsigur á Silkeborg í kvöld.

Rúnar Alex Rúnarsson stóð í marki Nordsjælland sem hefur unnið tvo leiki í röð.

Nordsjælland er í 7. sæti deildarinnar með 32 stig, einu stigi frá liðunum í 5. og 6. sætinu. Sex efstu liðin keppa sín á milli um danska meistaratitilinn.

Nordsjælland á einn leik eftir, gegn Midtjylland nítjánda þessa mánaðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×