Fótbolti

Rúnar Már með tvö í stórsigri Sundsvall

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rúnar Már í leik með Sundsvall.
Rúnar Már í leik með Sundsvall. Vísir
Sundsvall komst aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki í röð með 5-0 sigri á Ostersunds á heimavelli í dag en Sundsvall gerði út um leikinn með þremur mörkum á tíu mínútum í seinni hálfleik.

Rúnar Már Sigurjónsson og Kristinn Steindórsson voru báðir í byrjunarliði Sundsvall en Rúnar Már lék allar 90. mínútur leiksins á meðan Kristni var skipt af velli á 64. mínútu í stöðunni 3-0.

Rúnar bætti við öðru marki Sundsvall á 57. mínútu og kórónaði síðan góðan leik sinn og liðsins með öðru marki sínu og fimmta marki liðsins á 87. mínútu.

Með sigrinum skaust Sundsvall upp í fjórða sætið með átján stig eftir ellefu leiki en önnur lið deildarinnar eiga leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×