Sport

Rousey leikur í Entourage og The Fast and the Furious 7

Rousey er hér á frumsýningu Expendables 3 þar sem hún þreytti frumraun sína á hvíta tjaldinu.
Rousey er hér á frumsýningu Expendables 3 þar sem hún þreytti frumraun sína á hvíta tjaldinu. vísir/getty
Það er brjálað að gera hjá Rondu Rousey en hún leikur í hverri myndinni á fætur annarri á milli þess sem hún snýr niður andstæðinga sína í búrinu á nokkrum sekúndum.

Rousey kemur fram í sjöundu myndinni í Fast & The Furious-flokknum og hún er einnig með hlutverk í nýju Entourage-myndinni.

Í gær var svo tilkynnt að hún myndi leika í myndinni Mile 22 sem á að fara að gera. Þar verður hún í hlutverki CIA-útsendara en hún er að festa sig í sessi sem hasarstjarna.

Hún samdi við UFC að hún fengi nú frí til þess að leika í bíómynd áður en hún færi aftur í hringinn.

Miðað við hvað hún er í litlum vandræðum með að ganga frá andstæðingum sínum þá gæti hún hæglega mætt í hringinn um hverja helgi og haft lítið fyrir því.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×