Fótbolti

Rosengård úr leik þrátt fyrir mark Söru

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sara Björk í landsleik.
Sara Björk í landsleik. vísir/getty
Sara Björk Gunnarsdóttir var á skotskónum fyrir FC Rosengård sem datt út fyrir Wolfsburg í Meistaradeild Evrópu í dag, en lokatölur urðu 3-3. Fyrri leiknum lauk með 1-1 jafntefli og því Rosengård úr leik á útivallarmörkum.

Rosengård var 2-1 yfir í hálfleik, en Babett Peter og Alexandra Popp snéru taflinu við í síðari hálfleik og Wolfsburg komið í kjörstöðu.

Íslenski landsliðsfyrirliðinn, Sara Björk, jafnaði metinn fyrir Rosengård í uppbótartíma, en nær komust þær ekki og Wolfsburg því komið áfram.

Wolfsburg vann Meistaradeild Evrópu kvenna í fyrra og á því möguleika á að verja titilinn. Leikurinn var liður í 8-liða úrslitum deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×