Formúla 1

Rosberg á ráspól í Rússlandi

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg náði mikilvægum ráspól í Rússlandi.
Rosberg náði mikilvægum ráspól í Rússlandi. Vísir/getty
Nico Rosberg á Mercedes náði ráspól í tímatökunni á Sochi brautinni í dag. Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji.

Fyrsta lotan var fremur róleg, Pastor Maldonado snéri Lotus bílnum snemma í lotunni en annað gekk vel fyrir sig.

Rosberg var fljótur að sýna að hann hefur ekki gefist upp, hann var lengi vel heilli sekúndu fljótari en Hamilton.

Carlos Sainz á Toro Rosso lenti í hörðum árekstri á æfingu í morgun og tók því ekki þátt í tímatökunni. Hann var fluttur með þyrlu á sjúkrahús. Allar athuganir sýna að hann er heilsuhraustur og hann vonast til að keppa á morgun.

Fernando Alonso á McLaren, Marcus Ericsson á Sauber, og Manor ökumennirnir, Will Stevens og Roberto Merhi duttu út í fyrstu lotu.

Felipe Massa var sennilega sá ökumaður sem endaði lengst frá mögulegu sæti á ráslínu í dag. Liðsfélagi hans ræsir þriðji en hann 15.Vísir/Getty
Felipe Massa var afar óheppinn undir lok annarrar lotu, hann lenti í umferð og gerði smá mistök sem kostuðu hann þátttökurétt í þriðju lotu.

Ásamt Massa duttu út, Daniil Kvyat á Red Bull, Felipe Nasr á Sauber, Jenson Button á McLaren og Maldonado á Lotus.

Þriðja lotan var að vanda spennandi barátta um ráspól. Mercedes menn höfðu alla tímatökuna slegist um hraðasta tíman á hverjum hluta brautarinnar.

Rosberg var þriðjung úr sekúndu fljótari en Hamilton í fyrstu tilraun þeirra í þriðju lotu. Í annarri tilraun gerðu báðir mistök og Rosberg hreppti mikilvægan ráspól.

Bein útsending frá keppninni hefst klukkan 10:30 á Stöð 2 Sport á morgun.

Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit helgarinnar á gagnvirku brautarkorti.


Tengdar fréttir

Honda klárar uppfærsluskammtana í Rússlandi

Fernando Alonso, annar ökumanna McLaren-Honda liðsins mun nota ný uppfærða vél í rússneska kappakstrinum um helgina. Liðsfélagi hans, Jenson Button notar gömlu vélina.

Rosberg: Titilbaráttan er ekki búin

Nico Rosberg hefur ekki gefist upp á að verða heimsmeistari ökumanna í ár. Bilið milli hans og liðsfélaga hans hjá Mercedes Lewis Hamilton er breikkaði í síðustu keppni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×