Formúla 1

Rosberg á ráspól í Japan

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Nico Rosberg átti hringinn sem til þurfti upp í erminni.
Nico Rosberg átti hringinn sem til þurfti upp í erminni. Vísir/Getty
Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól þegar japanski kappaksturinn hefst á morgun. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Kimi Raikkonen á Ferrari varð þriðji.

Munurinn á milli Mercedes manna var 0,013 sekúndur þegar upp var staðið. Rosberg náði sínum 30. ráspól í Formúlu 1 í dag.

Öll athyglin er á baráttu liðsfélaganna hjá Mercedes. Rosberg var fljótari en Hamilton í fyrstu lotunni. En þeir komust áfram á harðari dekkjum en aðrir.

Sebastian Vettel á Ferrari var fljótastur í lotunni þó og Kimi Raikkonen annar, einnig á Ferrari.

Í fyrstu lotu duttu út; Manor og Sauber ökumennirnir, Kevin Magnussen á Renault og Jenson Button á McLaren.

Felipe Massa átti ekki góðan dag í sinni síðustu tímatöku á Suzuka brautinni.Vísir/Getty
Rosberg hélt áfram að hafa yfirhöndina gegn Hamilton í annarri lotu. Þar munaði 0,415 sekúndum á mönnunum sem berjast um heimsmeistaratitil ökumanna.

Carlos Sainz á Toro Rosso snérist á sinni síðustu tilraun til að setja góðan tíma í annarri lotu. Sainz þurfti á hringnum að halda en tókst ekki að tryggja sig áfram.

Í annarri lotu duttu út; Toro Rosso ökumennirnir og Williams ökumennirnir ásamt Fernando Alonso á McLaren og Jolyon Palmer á Renault.

Í fyrstu tilraun lokaumfeðrarinnar tókst Hamilton að skáka Rosberg. Sex fremstu ökumennirnir voru allir á sömu hálfu sekúndunni þegar fyrstu tilraun var lokið.

Rosberg töfraði fram rosalegan lokahring og stal ráspólnum af Hamilton.

Bein útsending frá keppninni hefst klukka 4:30 í fyrramálið á Stöð 2 Sport.

Hér að neðan má sjá gagnvirkt brautarkort með öllum helstu úrslitum helgarinnar.


Tengdar fréttir

Rosberg fljótastur á föstudegi í Japan

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir japanska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð annar á báðum æfingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×