Formúla 1

Rosberg á ráspól í Abú Dabí

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg á ráspól, spennan fyrir keppninni er nánast óbærileg.
Rosberg á ráspól, spennan fyrir keppninni er nánast óbærileg. Vísir/Getty
Nico Rosberg náði ráspól liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð annar og Valtteri Bottas á Williams varð þriðji. Þessi úrslit auka á spennuna í keppninni á morgun.

Í fyrstu lotunni duttu fimm hægustu ökumennirnir út, einum fleiri en í síðustu tveimur vegna þess að Caterham mætti aftur til keppni.

Fórnarlömb fyrstu lotu voru Will Stevens og Kamui Kobayashi á Caterham, Pastor Maldonado og Romain Grosjean á Lotus og Esteban Gutierrez á Sauber.

Williams menn voru tilbúnir að nýta sér mistök Rosberg. Felipe Massa varð annar í annarri lotu og Bottas varð þriðji. Rosberg var fjórði.

Í annarri lotu duttu Sergio Perez og Nico Hulkenberg á Force India, Kevin Magnussen á McLaren, Jean-Eric Vergne á Toro Rosso og Adrian Sutil á Sauber.

Þriðja lotan var spennandi, Hamilton gerði mistök í fyrstu tilraun og Rosberg var þá með ráspól. Í seinni tilrauninni í þriðju lotu náði Rosberg að verjast áhlaupi Hamilton.

Ef keppnin fer svona á morgun verður Hamilton meistari, hins vegar er stutt í Williams bílana sem geta sett strik í reikning breska ökumannsins.

Bottas gæti blandað sér í titilbaráttu Mercedes manna á morgun.Vísir/Getty
„Góður dagur í dag, ég vil þakka liðinu fyrir góðan bíl. En þetta var lítið skref í átt að titlinum. Ég var að vonast eftir Williams bíl á milli okkar en það gerðist ekki. Ég er tilbúinn að borga í heilsulindi fyrir Valtteri til að hann sé í einkar góðu formi á morgun,“ sagði Rosberg sem var brosmildur og léttur eftir tímatökuna.

„Ég náði ekki að setja almennilegan hring saman en bíllinn er frábær,“ sagði Hamilton.

„Það er gott fyrir okkur að ná þriðja og fjórða. Við höfum séð það að Mercedes eru fljótir í keppnunum. Ef ég fæ tækifæri þá mun ég reyna að koma mér framar en það gæti verið erfitt,“ sagði Bottas.



Úrslit tímatökunnar á Yas Marina brautinni 2014:

1.Nico Rosberg - Mercedes

2.Lewis Hamilton - Mercedes

3.Valtteri Bottas - Williams

4.Felipe Massa - Williams

5.Daniel Ricciardo - Red Bull

6.Sebastian Vettel - Red Bull

7.Daniil Kvyat - Toro Rosso

8.Jenson Button - McLaren

9.Kimi Raikkonen - Ferrari

10.Fernando Alonso - Ferrari

11.Kevin Magnussen - McLaren

12.Jean-Eric Vergne - Toro Rosso

13.Sergio Perez - Force India

14.Nico Hulkenberg - Force India

15.Adrian Sutil - Sauber

16.Esteban Gutierrez - Sauber

17.Pastor Maldonado - Lotus

18.Kamui Kobayashi - Caterham

19.Will Stevens - Caterham

20.Romain Grosjean - Lotus

Bein útsending frá lokakeppni tímabilsins hefst á Stöð 2 Sport klukkan 12:30 á morgun. Spennan er nánast óbærileg.


Tengdar fréttir

Mercedes ábyrgt fyrir heiðarlegri baráttu

Mercedes liðið í Formúlu 1 segir að forgangsatriði liðsins í Abú Dabí verði að tryggja að báðir ökumenn eigi sanngjarna möguleika á heimsmeistaratitlinum.

Damon Hill telur pressuna vera á Hamilton

Damon Hill sem varð heimsmeistari í Formúlu 1 árið 1996, segir að Abú Dabí verði erfiðari keppni fyrir Lewis Hamilton en Nico Rosberg.

Hamilton fljótastur á báðum æfingum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur allra á báðum æfingum dagsins í Abú Dabí. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg var þó ekki langt á eftir.

Allar brellur notaðar fyrir lokaátökin í Abú Dabí

Mercedes-ökuþórarnir Lewis Hamilton og Nico Rosberg berjast um heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í Abú Dabí á sunnudaginn. Enginn annar en þeir getur unnið. Sálfræðistríðið í fullum gangi hjá "vinunum“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×