Formúla 1

Rosberg: Hamilton þarf að keppa af sanngirni

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Rosberg segist þurfa á aðstoð að halda frá Hamilton sem er ekki líklegur til að verða við þeirri bón.
Rosberg segist þurfa á aðstoð að halda frá Hamilton sem er ekki líklegur til að verða við þeirri bón. Vísir/Getty
Nico Rosberg hefur sagt liðsfélaga sínum og keppinaut, Lewis Hamilton að keppnin í Abú Dabi þurfi að vera sanngjörn.

Úrslit heimsmeistarakeppni ökumanna munu ráðast á sunnudag þegar Mercedes ökumennirnir tveir berjast á brautinni í Abú Dabí.

„Lewis getur átt stóran þátt í að keppnin verði sanngjörn, hann getur ekið varlega sjálfur. Svo það er ekki eins og hann geti ekkert gert,“ sagði Rosberg.

Rosberg er bjartsýnn á eigin möguleika, hann bendir á að Williams liðið sé líklegt til að blanda sér í innbyrðis baráttu Mercedes manna.

„Það getur margt gerst það þarf ekki meira til en góða ræsingu frá Williams liðinu og annar þeirra komst á milli okkar. Þessi braut er ein sú erfiðasta þegar kemur að fram úr akstri, við vorum að skoða þetta í morgun og það þarf gríðarlegan hraðamun til að ná fram úr bílnum á undan,“ sagði Rosberg.

„Þetta verður spennandi, ég er hér til að vinna keppnina, en í ofanálag þarf ég smá hjálp frá Lewis sem felst í því að hann nái ekki öðru sæti. Það er allt og sumt, ég vona að Lewis finni leið til að verða við því,“ sagði Rosberg að lokum.


Tengdar fréttir

Mercedes ábyrgt fyrir heiðarlegri baráttu

Mercedes liðið í Formúlu 1 segir að forgangsatriði liðsins í Abú Dabí verði að tryggja að báðir ökumenn eigi sanngjarna möguleika á heimsmeistaratitlinum.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá

Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?

Nico Rosberg fyrstur í Brasilíu

Nico Rosberg á Mercedes varð fyrstur í Brasilíu, liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar og heimamaðurinn, Felipe Massa á Williams varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×