Fótbolti

Ronaldo skrifaði undir nýjan fimm ára samning

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Ronaldo skrifaði í dag undir nýjan saming.
Ronaldo skrifaði í dag undir nýjan saming. Vísir/EPA
Portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo framlengdi í dag samning sinn hjá Real Madrid en nýji samningurinn rennur út þegar hann verður 36 ára.

Ronaldo sem hefur leikið 360 leiki í treyju Real Madrid í öllum keppnum og skorað í þeim 371 mark en hann var á sínum tíma dýrasti knattspyrnumaður heims þegar Madrídingar greiddu 80. milljónir punda fyrir þjónustu hans frá Manchester United.

Ronaldo átti aðeins tvö ár eftir af samningi sínum hjá spænska stórveldinu en hann hefur verið orðaður við lið úr MLS og kínversku deildinni.

Madrídingar hafa verið að semja við stjörnur sínar á ný en Toni Kroos, Luka Modric og Gareth Bale hafa allir fengið nýja samninga á þessu tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×