Fótbolti

Ronaldo pakkaði sportbíl Quaresma inn í álpappír

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Cristiano Ronaldo með skóinn og "bílskóinn“.
Cristiano Ronaldo með skóinn og "bílskóinn“. mynd/twitter
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid og porúgalska landsliðsins, hrekkti Ricardo Quaresma, félaga sinn í landsliðinu í gær.

Ronaldo sá um Snapchat-aðgang Nike football í gær og ákvað að gera sportbíl Quaresma líkan nýja Nike Mercurial-skónum sem Ronaldo auglýsir þessa dagana.

Ronaldo pakkaði sportbílnum inn í álpappír og málaði stafina CR7 á bílinn áður en hann tók mynd af sér haldandi á nýja skónum með bílinn í baksýn.

„Hey Quaresma. Mér fannst þú þurfa aðeins meiri hraða fyrir næsta leik okkar,“ skrifaði Ronaldo á Twitter-síðu sína.

„Í alvöru, Cristiano? Er þetta nýi Mercurial-bíllinn minn? Segðu mér að þú hafir ekki gert þetta við bílinn minn,“ skrifaði Quaresma á Twitter.

Myndir af hrekknum má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×