Fótbolti

Ronaldo nálgast þriggja stafa tölu | Sjáðu mörkin

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ronaldo er búinn að skora 98. mörk í Meistaradeildinni.
Ronaldo er búinn að skora 98. mörk í Meistaradeildinni. vísir/getty
Önnur umferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu hófst með átta leikjum í gær.

Tottenham Hotspur náði í sín fyrstu stig í E-riðli þegar liðið lagði CSKA að velli í Moskvu, 0-1. Son Heung-Min skoraði eina mark leiksins en Suður-Kóreumaðurinn hefur verið heitur að undanförnu.

Cristiano Ronaldo skoraði sitt 98. mark í Meistaradeildinni þegar Real Madrid gerði 2-2 jafntefli við Borussia Dortmund á útivelli í F-riðli. Real Madrid er ósigrað í síðustu 23 leikjum sínum í riðlakeppni Meistaradeildarinnar.

Leicester City er með fullt hús stiga í G-riðli eftir 1-0 sigur á Porto. Alsíringarnir í liði Leicester áttu heiðurinn að markinu. Riyad Mahrez sendi fyrir á Islam Slimani sem skallaði boltann í netið á 25. mínútu.

Juventus átti svo ekki í neinum vandræðum með að vinna Dinamo Zagreb í H-riðli. Lokatölur 0-4, ítölsku meisturunum í vil.

Mörkin úr umræddum fjórum leikjum má sjá hér að neðan.

Annarri umferð riðlakeppninnar lýkur með átta leikjum í kvöld. Fjórir þeirra verða sýndir í beinni útsendingu á Sportstöðvum Stöðvar 2. Þá verður Meistaradeildarmessan á dagskrá á Stöð 2 Sport HD, en þar verður fylgst með öllum átta leikjum kvöldsins samtímis.

Dagskrá kvöldsins í Meistaradeildinni:

18:15 Meistaradeildarmessan - Stöð 2 Sport

18:40 Arsenal - Basel - Stöð 2 Sport 2

18:40 Celtic - Man City - Stöð 2 Sport 3

18:40 Atlético Madrid - Bayern München - Stöð 2 Sport 4

18:40 Borussia Mönchengladbach - Barcelona - Stöð 2 Sport 5

20:45 Meistaradeildarmörkin - Stöð 2 Sport

CSKA Moskva 0-1 Tottenham Dortmund 2-2 Real Madrid Leicester 1-0 Porto Dinamo Zagreb 0-4 Juventus



Fleiri fréttir

Sjá meira


×