Fótbolti

Ronaldo henti hljóðnemanum út í vatn | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ronaldo er eitthvað fúll þessa dagana.
Ronaldo er eitthvað fúll þessa dagana. vísir/getty
Portúgalinn Cristiano Ronaldo hefur ekki fundið sig á EM og hefur enga þolinmæði fyrir fjölmiðlamönnum lengur.

Hann var á göngu í Frakklandi er sjónvarpsmaður vatt sér upp að honum og spurði hann út leikinn gegn Ungverjalandi í dag.

Portúgalinn gerði sér þá lítið fyrir og hrifsaði hljóðnemann af sjónvarpsmanninum. Hann kastaði hljóðnemanum síðan út í vatn.

Við svo búið hélt Ronaldo áfram göngu sinni eins og ekkert hefði í skorist.

Sjá má þetta atvik hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×