Bíó og sjónvarp

Rómantísk gamanmynd um Black Widow

Samúel Karl Ólason skrifar
Marvel hefur í gegnum tíðina ekki gengið vel að beina kastljósinu að kvenkyns ofurhetjum á hvíta tjaldinu. Leikonan Scarlett Johansson stjórnaði nýjasta þætti Saturday night live um helgina og þar var reynt að svara því hvernig sérstök kvikmynd um Black Widow yrði.

Í umræddum grínskets er myndin rómantísk gamanmynd um ofurhetju sem einnig þarf að sinna störfum sínum fyrir tískufyrirtæki. Svo þarf hún auðvitað að sinna tilhugalífinu, en það getur greinilega reynst erfitt að hitta hinn fullkomna mann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×