Lífið

Roller Derby sækir í sig veðrið

Kristjana Arnarsdóttir skrifar
Mynd/Marko Niemelä
Keppnislið Roller Derby Íslands, Ragnarök, hélt til Finnlands um síðustu helgi í sína fyrstu keppnisferð.

Þar lék liðið tvo leiki, annars vegar við lið Kotham City Rollers og hins vegar við Lihamukiloijat. Roller Derby hafði betur gegn Kotham City en þurftu að lúta í lægra haldi fyrir Lihamukiloijat.

Roller derby er hægt og bítandi að sækja í sig veðrið en um 35 konur æfa hér á landi. Roller Derby Ísland verður með þrjá hjólaskautaviðburði í sumar í samvinnu við Reykjavíkurborg en í ágúst verður haldið spennandi nýliðaprógramm fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér á hjólaskautunum. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×